Aðalfundur ACI á Íslandi 2013

Haldinn var aðalfundur ACI þann 13. september 2013 í Hörpu. Um 50 félagsmenn mættu og voru þar fulltrúar allra þeirra banka sem eiga meðlimi í samtökunum.

Kjartan Hauksson, formaður samtakanna, var kjörinn fundarstjóri. Ritari fundarins var Ragnar Björn Ragnarsson, ritari samtakanna. Gjaldkeri samtakanna, Ingólfur Áskelsson lagði fram ársreikning félagsins frá 1. september 2012 til 31. ágúst 2013 og þeir samþykktir einróma.

Stjórnarkjör fór fram og voru allir stjórnarmenn endurkjörnir. Samþykkt var að fela stjórninni að fjölga meðlimum í fagráði samtakanna eftir því sem stjórnin telur ástæðu til. Andri Úlfarsson, stjórnandi menntamála hjá samtökunum, kynnti þau námskeið sem í boði verða í haust fyrir félagsmenn og aðra starfsmenn fjármálafyrirtækja.

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum var boðið upp á fordrykk og kvöldverð.